Vilja rýmka framsalsreglur og halda greiðslumiðlun


Aðalfundur Stranda var haldinn á Hólmavík 18. september sl.  Á fundinum ríkti mikil eining sem skilaði vel ígrunduðum tillögum til aðalfundar LS sem haldinn verður 13. og 14. október nk.
Meðal þeirra er að:

IMG_3643.jpg

• Fyrirkomulag grásleppuveiða á vertíðinni 2012 verði óbreytt
• Ýsukvóti verði strax aukinn í 
60 þús. tonn.
• Reglugerð í Húnaflóa sem 
bannar línuveiðar verði afnumin
Í greinargerð með tillögunni segir að lokunarhólfið sé mikilvæg veiðislóð fyrir smábáta við Húnaflóa.  Hæpnar forsendur væru fyrir reglugerðinni sem byggðist mest á illdeilum milli veiðieftirlitsmanna og skipstjóra Sighvats GK.
IMG_3644_2_3.jpeg
• Þess er krafist að skötuselur verði utan kvóta sem meðafli á grásleppuveiðum.

• Strandir skora á sjávarútvegsráðherra að auka framsals- og geymslurétt veiðiheimilda
• Að fyrirkomulag greiðslumiðlunar verði óbreytt, en hægt verði að segja sig frá trygginga- og/eða lífeyrishluta.                     
Haraldur Ingólfsson formaður Stranda