LS fundar með atvinnveganefnd Alþingis

Landssamband smábátaeigenda fundaði með atvinnuveganefnd Alþingis sl. föstudag.  Á fundinum gerði LS grein fyrir umsögnum sínum við frumvarp til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld.
Umsagnir félagsins voru báðar ítarlegar og tók sú sem fjallaði um fiskveiðisstjórnunarfrumvarpið tók á flestum greinum þess.
Varðandi veiðigjöld þá leggur LS til í umsögn sinni að í stað veiðigjalds sem tekur mið af þeim útreikningum sem lagðir eru til í frumvarpinu verði greiðsla fyrir afnotin tekin í gegnum tekjuskatt hvers og eins sem leyfi hefur til nýtingar.  Þannig verði álag reiknað á tekjuskatt allra þeirra sem leyfi hafa til að nýta náttúruauðlindir sem eru í eigu þjóðarinnar.  Kostir þessarar aðferðar eru margir, þessir helstir:
• Notast verður við þekkta aðferð, ekki sé verið að búa til nýtt skattaumhverfi með upptöku 
        nýs skatts. 
• Sams konar aðferð fyrir alla hvort sem gengið er um landið, klifin fjöll, veiddur fiskur, orka      
        framleidd osfrv.
• Að komið verði í veg fyrir að veiðigjald greiði niður tekjuskatt þeirra sem hann greiða í dag 
        sem er augljós mismunun.
• Aðferðin tekur mið af stöðu hvers og eins leyfishafa.
LS vakti í umsögn sinni athygli nefndarinnar á sérstöðu krókaaflamarksbáta og sagði hana kalla á sérstakan gjaldflokk fyrir þá.  Einnig beindi LS athygli nefndarinnar að umhverfissjónarmiðum, að tekið yrði tillit til þeirra við álagningu veiðigjalds og að gjaldstofn verði endurskoðaður.