Halldór Ármannsson formaður Siglingaráðs

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað Halldór Ármannsson fv. formann Landssambands smábátaeigenda til að gegna formennsku í siglingaráði.   
Hlutverk siglingaráðs er að vera ráðherra til ráðuneytis um siglinga-, hafna- og öryggismál sjófarenda.
Halldór Ármannsson (1).png
Helstu verkefni sem siglingaráð kemur að er
• að móta tillögu að öryggisáætlun  
        sjófarenda með Samgöngustofu
• að vinna að langtímaáætlun í 
        öryggismálum sjófarenda, ásamt því 
        að hafa eftirlit með framgangi hennar 
        og stuðla að samstarfi þeirra aðila sem 
        að henni koma
• að veita umsagnir um lagafrumvörp og 
        drög að reglugerðum er varða 
        siglinga- og hafnamál, ásamt EES-
        gerðum og innleiðingu þeirra
• að veita umsögn um tillögu 
        samgönguráðs að samgönguáætlun hvað varðar málefni siglinga og hafna
• að stofna vinnuhópa um afmörkuð verkefni sem ráðið ákveður að ráðast í eða 
        ráðherra felur því að vinna
• að fjalla um önnur mál á sviði siglinga og hafna að ósk ráðherra eða einstakra 
        ráðsmanna.
Halldór tekur við formennsku af Ásbirni Óttarssyni fv. alþingismanni.
Fulltrúi LS í ráðinu er Axel Helgason formaður.
LS óskar Halldóri til hamingju með formennskuna, jafnframt sem fráfarandi formanni er þakkað fyrir sín störf.